Hamburger 1 - 1 Bayern Munchen
1-0 Jacopo Sala ('23)
1-1 Ivica Olic ('71)
1-0 Jacopo Sala ('23)
1-1 Ivica Olic ('71)
Hamburger og Bayern Munchen áttust við í lokaleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni. Fyrir leikinn var Hamburger í tólfta sæti deildarinnar en Bayern Munchen í öðru.
Með sigri gat Bayern jafnað Borussia Dortmund á toppi deildarinnar og komist tveimur stigum yfir Schalke og þremur stigum yfir Borussia Mönchengladbach en liðinu tókst aðeins að næla sér í jafntefli.
Jacopo Sala kom heimamönnum yfir og eftir mikinn sóknarþunga og erfiði var það varamaðurinn Ivica Olic sem jafnaði leikinn fyrir Bayern sem átti skilið meira en eitt stig úr þessum leik.



