Manchester City 3 - 0 Fulham
1-0 Sergio Aguero ('10, vítaspyrna)
2-0 Chris Baird ('30, sjálfsmark)
3-0 Edin Dzeko ('72)
1-0 Sergio Aguero ('10, vítaspyrna)
2-0 Chris Baird ('30, sjálfsmark)
3-0 Edin Dzeko ('72)
Topplið Manchester City er nú þremur stigum yfir nágranna sína í Manchester United eftir öruggan sigur á heimavelli gegn Fulham. Man Utd þarf þá sigur á erfiðum útivelli Chelsea á morgun til að jafna Man City að stigum á nýjan leik.
Markatalan bendir til þess að sigurinn hafi jú verið öruggur, enda var hann það tæknilega séð, en leikurinn sjálfur var mjög jafn og voru gestirnir frá London óheppnir að skora ekki nokkur mörk en Joe Hart sá við þeim í marki City.
Fyrsta markið kom þegar Chris Baird braut á Adam Johnson innan vítateigs og skoraði Aguero úr vítaspyrnunni, en endursýningar sýndu að dómarinn hefði alls ekki þurft að dæma víti. Annað mark leiksins kom svo þegar Adam Johnson gaf boltann fast fyrir, en hann fór í Baird og í netið. Þannig að Baird var mjög óheppinn að fá dæmt á sig víti og skora svo sjálfsmark.
Edin Dzeko skoraði lokamark leiksins eftir stoðsendingu frá Sergio Aguero á 72. mínútu.



