Fílabeinsströndin 3 - 0 Miðbaugs-Gínea
1-0 Didier Drogba ('36)
2-0 Didier Drogba ('69)
3-0 Yaya Toure ('81)
1-0 Didier Drogba ('36)
2-0 Didier Drogba ('69)
3-0 Yaya Toure ('81)
Fílabeinsströndin tefldi fram gríðarlega sterku liði í átta liða úrslitum Afríkukeppninnar þar sem Didier Drogba og Gervinho, sóknarmenn Chelsea og Arsenal, byrjuðu í fremstu víglínu með Didier Zokora og Yaya Toure sér til stuðnings á miðjunni.
Didier Drogba skoraði fyrstu tvö mörk Fílabeinsstrandarinnar gegn heimamönnum í Miðbaugs-Gíneu sem tefldi fram liði sem var aðallega skipað Brasilíumönnum og Spánverjum.
Yaya Toure, miðjumaður Manchester City, lagði annað mark Drogba upp og skoraði sjálfur þriðja og síðasta mark leiksins.
Fílabeinsströndin mætir annað hvort Gana eða Túnis í undanúrslitum keppninnar.


