Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 04. febrúar 2012 22:15
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Sky Sports 
Rio Ferdinand tjáir sig um mál bróður síns
Rio Ferdinand, varnarmaður Englandsmeistara Manchester United, hefur stigið fram til varnar litla bróður sínum, Anton Ferdinand. Anton hefur lent í leiðindamálum undanfarið eftir að John Terry, varnarmaður Chelsea, var sakaður um kynþáttafordóma gagnvart honum.

„Anton er litli bróðir minn. Við ólumst upp saman og ég leit eftir honum þegar við vorum yngri. Ef það er eitthvað sem angrar hann eða særir, þá er ég alltaf til staðar fyrir hann,“ sagði Rio.

„Svona stundir, þegar allt er svo opinbert og maður getur í raun ekkert tjáð sig, geta verið mjög þreytandi. Þetta hefur verið erfitt fyrir fjölskylduna. Eftir allt saman, þá hefur bróðir minn ekki sakað neinn um eitt eða neitt. Að auki er hann ekki sakaður um neitt.“

Rio viðurkennir einnig að það hafi verið pirrandi að þurfa að horfa á fólk tala illa um bróður sinn.

„En hann (Anton) hefur þrátt fyrir það þurft að draga sig til hlés og hlusta á áreiti frá misgáfuðu fólki, sem er mjög pirrandi. Ég vona að fólk sjái hvaða áhrif það hefur, ekki bara á fórnarlambið sjálft, heldur einnig á fólkið í kringum hann og hugsi áður en það talar.“­

John Terry hefur verið sviptur fyrirliðabandi enska landsliðsins vegna atviksins. Málið er í dómsfarvegi hjá breskum yfirvöldum og verður úrskurður í málinu kveðinn í sumar. Terry neitar allri sök í málinu.
Slapp
banner
banner
banner