Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 04. febrúar 2012 22:57
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Barcelona sjö stigum frá Real Madrid þrátt fyrir sigur
Barcelona 2 - 1 Real Sociedad
1-0 Cristian Tello ('9)
2-0 Lionel Messi ('72)
2-1 Carlos Vela ('74)

Börsungar stilltu mjög ungu liði á heimavelli gegn Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni í dag en höfðu betur þrátt fyrir það. Xavi, Iniesta, Busquets, Villa, Pedro, Pique, Abidal og fleiri góðir voru geymdir utan hóps, á bekknum eða í hjúkrun.

Cristian Tello, sem er tekinn beint úr B-liði Barcelona, skoraði fyrsta mark leiksins á níundu mínútu. Heimamenn stjórnuðu svo leiknum eins og vanalega á heimavelli og komust oft nálægt því að skora áður en Lionel Messi tvöfaldaði forskotið en tveimur mínútum síðar skoraði minnkaði Carlos Vela muninn aftur í eitt mark.

Meira var ekki skorað og er Barcelona þá sem fyrr í öðru sæti og sjö stigum frá Real Madrid sem trónir á toppnum.
Slapp
banner
banner