Arsene Wenger, stjóri Arsenal, viðurkennir að vera meðvitaður um það að ofnota ekki hinn efnilega Alex Oxlade-Chamberlain.
Þessi 18 ára strákur hefur leikið vel í síðustu leikjum.
Þessi 18 ára strákur hefur leikið vel í síðustu leikjum.
„Við sjáum hvað gerðist með Jack Wilshere. Það er erfitt fyrir þessa stráka að spila svona marga leiki og svo bætast landsleikir ofan á það," segir Wenger.
Nú þegar er verið að orða Oxlade-Chamberlain við sæti í landsliðshópi Fabio Capello fyrir Evrópumótið.
„Það þarf að finna hinn gullna meðalveg sem hefur ekki neikvæð áhrif á sjálfstraust hans og setur ekki of mikla pressu á hann," segir Wenger.



