Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. febrúar 2012 19:00
Magnús Már Einarsson
Phil Dowd dæmir leik Manchester United og Liverpool
Phil Dowd mun fá það verkefni að dæma leik Manchester United og Liverpool á Old Trafford á laugardag.

Búast má við að stemningin verði rafmögnuð á Old Trafford á laugardag en Luis Suarez mun mæta Patrice Evra á nýjan leik eftir að hafa verið dæmdur fyrir kynþáttafordóma í garð Frakkans í leik liðanna á Anfield í október síðastliðnum.

Síðast þegar Manchester United og Liverpool áttust við á Old Trafford fyrir rúmu ári síðan sigruðu heimamenn 1-0 en sigurmarkið kom úr umdeildri vítaspyrnu.

Eftir leikinn birti Ryan Babel, þáverandi leikmaður Liverpool, mynd á Twitter síðu sinni af Howard Webb dómara leiksins þar sem búið var að breyta myndinni þannig að hann væri í treyju Manchester United.

Babel var síðan sektaður í kjölfarið af enska knattspyrnusambandinu áður en hann var seldur til Hoffenheim nokkrum vikum síðar.
Slapp
banner
banner
banner