Marcelino Garcia Toral hefur verið rekinn sem þjálfari Sevilla. Liðið lék um helgina sinn sjöunda leik í deildinni án sigurs.
Hann er áttundi þjálfarinn í spænsku úrvalsdeildinni sem er látinn taka pokann sinn síðan tímabilið hófst.
Hann er áttundi þjálfarinn í spænsku úrvalsdeildinni sem er látinn taka pokann sinn síðan tímabilið hófst.
Sevilla tapaði í gær 2-1 fyrir Villarreal og er í ellefsta sæti deildarinnar. Það er sex stigum fyrir neðan Meistaradeildarsæti.
Sevilla mætir Real Sociedad í næsta leik.



