Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. febrúar 2012 18:43
Brynjar Ingi Erluson
Redknapp stýrir Tottenham ekki í kvöld gegn Liverpool
Harry Redknapp, stjóri Tottenham á Englandi getur ekki stýrt liðinu í kvöld gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Flugið var fellt niður hjá enska stjóranum sem hefur verið að sinna persónulegum erindum undanfarna daga. Hann mætti í réttarsal í dag, en hann hefur verið kærður fyrir skattsvik á meðan hann starfaði fyrir Portsmouth.

Hann er sakaður um að hafa þegið greiðslur frá eiganda Portsmouth án þess að tilkynna greiðslurnar til skatts, en hundurinn hans Harry fékk greiðslurnar á sitt nafn og hefur því stjórinn verið ansi upptekinn að undanförnu.

Hann getur því ekki stýrt Tottenham í kvöld gegn Liverpool, en leikurinn er háður á Anfield Road heimavelli Liverpool. Það er þó óvíst hvort hann komi til með að fara fram en mikil þoka er á vellinum þessa stundina.
Slapp
banner
banner