Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. febrúar 2012 22:00
Brynjar Ingi Erluson
England: Suarez sneri aftur í jafntefli gegn Tottenham
Liverpool 0 - 0 Tottenham Hotspur

Liverpool og Tottenham gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, en leikið var á Anfield Road heimavelli Liverpool.

Fyrri hálfleikurinn bauð ekki upp á mikla skemmtun og var eitt áhugaverðast umræðuefni er köttur skokkaði inn á völlinn á 13. mínútu. Hann staldraði þó ekki lengi við og ákvað hann að gefa sig fram til öryggisvarða vallarins.

Fyrsta alvöru færið kom á 34. mínútu þegar Jay Spearing átti hörkuskot rétt fyrir utan teig, en boltinn fór rétt framhjá markinu. Glen Johnson átti þá tvö góð tækifæri rétt fyrir hálfleik, en Brad Friedel sá við honum í bæði skiptin.

Martin Kelly fékk fínt færi á 59. mínútu, en Friedel varði skot hans í horn. Tottenham sótti ekki mikið í leiknum og stóð liðið mikið í því að verjast.

Luis Suarez kom inná sem varamaður á 65. mínútu leiksins, en þetta var hans fyrsti leikur síðan í lok desember. Hann kom með mikinn ferskleika í sóknarleik Liverpool, en hann fékk nokkur góð færi til að skora.

Louis Saha lék þá sinn fyrsta leik í treyju Tottenham, en hann kom inná sem varamaður fyrir Emmanuel Adebayor. Saha kom til félagsins á lokadegi félagaskiptigluggans frá Everton.

Gareth Bale fékk dauðafæri þegar fimm mínútu voru eftir af venjulegum leiktíma, en hann slapp þá í gegn einn á móti Jose Manuel Reina en sá spænski sá við honum í markinu.

Suarez fékk fínt færi undir lok leiks að skora, en skot hans fór þá í varnarmann Spurs áður en boltinn hrökk í hönd hans. Lokatölur í kvöld á Anfield því markalaust jafntefli í frekar bragðdaufum leik.
Slapp
banner
banner