Heimild: BBC
Scott Parker, miðjumaður Tottenham Hotspur var ánægður með stigið sem liðið sótti á Anfield í kvöld er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Liverpool.
Eins og áður segir þá endaði leikurinn með markalausu jafntefli, en heimamenn sóttu stíft á Tottenham í leiknum. Parker var virkilega duglegur í leik liðsins í kvöld, en hann þurfti að fórna sér nokkrum sinnum.
Hann fékk nokkur spörk í sig, en það fyrra kom frá Charlie Adam. Adam sendi þá boltann en í leiðinni rann á Parker. Þá sparkaði Luis Suarez harkalega í maga Parker er boltinn barst inn í teiginn, en af upptökum að sjá þá virtist atvikið óviljandi.
,,Þegar þú kemur á Anfield þá er það alltaf erfitt og kvöldið í kvöld var engin undantekning á því. Þeir sóttu svolítið mikið á okkur, en við fengum stig, héldum hreinu og töpuðum ekki leiknum," sagði Parker.
Harry Redknapp, stjóri Tottenham var ekki á leiknum í kvöld en hætt var við flugið hans frá London þar sem hann var að sinna persónulegum erindum.
,,Það hefur alltaf áhrif á mann þegar stjórinn er ekki til staðar. Harry býr alltaf til jákvæða orku og með mikla hvatningu og við höfum saknað hans undanfarnar vikur," sagði Parker að lokum.


