Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. febrúar 2012 22:27
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: BBC 
Dalglish: Fengum ekki það sem við áttum skilið
Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool segir að liðið hafi verðskuldað þrjú stigin í kvöld er liðið gerði markalaust jafntefli við Tottenham á Anfield.

Leikurinn var ekki mikið fyrir augað í kvöld, en nokkur hættuleg færi fengu að líta dagsins ljós. Liverpool sótti mikið á gestina, en liðinu tókst hins vegar ekki að klára færin sín og uppskar því eitt stig.

,,Við fengum ekki það sem við áttum skilið, en það mikilvægasta er að ég er virkilega ánægður með spilamennsku liðsins," sagði Dalglish.

,,Við settum þá undir mikla pressu og við vorum ákveðnir í spilinu, við þurftum bara á smá heppni að halda til þess að koma boltanum í netið."

Gareth Bale var nálægt því að tryggja Tottenham stigin þrjú undir lok leiksins, en Pepe Reina sá við honum.

,,Pepe Reina hafði ekki mikið að gera í leiknum fram að þessu, en þetta var virkilega góð markvarsla," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner