Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 06. febrúar 2012 22:45
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Nýliðarnir í Granada sigruðu Malaga
Granada CF 2 - 1 Malaga
1-0 Odion Jude Ighalo ('57 )
1-1 Jose Salomon Rondon ('68 )
2-1 Inigo Lopez ('81 )
Rautt spjald:Martin Demichelis, Malaga ('83)

Nýliðarnir í Granada sigruðu Malaga með tveimur mörkum gegn einu í spænsku deildinni í kvöld.

Odion Jude Ighalo kom heimamönnum í Granada yfir á 57. mínútu með föstum skalla eftir fyrirgjöf frá hægri áður en Jose Salomon Rondon jafnaði metin á 68. mínútu eftir frábært spil.

Inigo Lopez tókst þó að tryggja heimamönnum sigurinn tíu mínútum fyrir leikslok með góðu skot úr teignum. Lokatölur því 2-1 Granada í vil.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner