Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 07. febrúar 2012 12:30
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Guardian 
Demba Ba ánægður hjá Newcastle - Vildi ekki fara
Demba Ba er gríðarlega ánægður í herbúðum Newcastle United og hafði engan áhuga á því að yfirgefa félagið í janúar.

„Ég talaði ekki við neinn og sagðist vilja fara. Ég heyrði bara fólk tala um að ég væri á leið hingað og þangað. Ég brosti yfir því, mestu máli skiptir er að njóta þess að spila fótbolta og ég er ánægður hér," segir Ba.

Þessi senegalski sóknarmaður hefur verið iðinn við kolann hjá Newcastle en í samningi hans er klásúla um að hægt sé að losa hann undan samningi fyrir 7 milljónir punda.

Ba hefur fengið góðan félagsskap hjá Newcastle eftir að Papiss Demba Cisse var keyptur frá Freiburg.

„Ég samgleðst Papiss fyrir sigurmarkið sem hann skoraði gegn Aston Villa. Það er mjög mikilvægt að skora snemma fyrir nýja liðið sitt. Þegar þú kemur inn og skorar strax þá líður þér strax mun betur. Þetta var frábær dagur, það var ekki einu sinni of mikill snjór!" segir Ba.

„Papiss er frábær kaup fyrir okkur. Ég varð mjög ánægður þegar hann skrifaði undir. Ég var búinn að tala við hann og segja honum að koma. Hann spurði mikið um Newcastle, félagið og stuðningsmennina. Ég held að hann hafi notið þess að fá góðar viðtökur en hann á eftir að sjá mikið meira."

Newcastle er í fimmta sæti deildarinnar og mætir Tottenham í næsta leik.
Slapp
banner
banner
banner