Heimild: Sky
Matthew Upson, varnarmaður Stoke, gæti verið á leið til Kína en Shanghai Shenhua hefur áhuga á að fá hann í sínar raðir.
Shanghai Shenhua samdi við Nicolas Anelka fyrir nokkrum vikum og félagið hefur hug á að fá fleiri leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni.
Þar á meðal er Matthew Upson en Shanghai Shenhua vonast einnig eftir að fá Didier Drogba frá Chelsea.
,,Það er ekkert staðfest. Við erum ennþá í miðjum viðræðum," sagði Ma Yue stjórnarmaður hjá Shanghai Shenhua.
Matthew Upson kom til Stoke frá West Ham síðastliðið sumar en þessi 32 ára gamli leikmaður hefur einungis verið fimm sinnum í byrjunarliði á þessu tímabili.


