Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. febrúar 2012 13:30
Elvar Geir Magnússon
Zenit í viðræðum um Krasic
Forráðamenn rússneska félagsins Zenit frá Pétursborg eru staddir í Tórínó á Ítalíu þar sem þeir ræða um hugsanleg kaup á Milos Krasic frá Juventus.

Félagaskiptaglugganum í Rússlandi verður lokað 24. febrúar.

Luciano Spalletti þjálfar Zenit en hann er fyrrum þjálfari Roma.

Juventus keypti serbneska leikmanninn fyrir háar fjárhæði frá CSKA Moskvu 2010. Hann hefur skorað eitt mark í sjö deildarleikjum á tímabilinu, hann byrjaði aðeins fjóra af þessum leikjum.

Krasic er 27 ára.
Slapp
banner
banner
banner