Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. febrúar 2012 14:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Goal 
Mario Basler: Það á að taka Arjen Robben úr liðinu
Mario Basler, fyrrum leikmaður FC Bayern, vill að Jupp Heynckes þjálfari liðsins taki Arjen Robben út úr lðinu.

Robben hefur ekki náð sér á strik á þessu tímabili og Basler segir að það sé kominn tími að henda honum á spýtuna.

,,Það er alveg á hreinu eftir jafnteflið gegn Hamburg að það þarf að taka Arjen Robben úr byrjunarliðinu," sagði Basler.

,,Bayern var upp á sitt besta fyrir vetrarfríið þegar Hollendingurinn var ekki með vegna meiðsla. Hann gerir alltaf það sama. Hann fær boltann, fer inn á völlinn og skýtur eða tapar boltanum án þess að hlaupa til baka."

,,Það skiptir ekki máli þó að hann sé stjarna. Þetta snýst allt um liðið. Bayern gæti endað í öðru eða þriðja sæti í tölfunni ef þeir gera ekki breytingar," sagði Basler sem er einnig ósáttur með framlag Toni Kroos og Thomas Mueller.

,,Það eru þrjú vandamál hjá þeim að mínu mati. Toni Kroos er ekki sitjandi miðjumaður, Thomas Mueller virðist vera týndur og svo er þetta með Robben."
Slapp
banner