Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   mið 08. febrúar 2012 12:00
Magnús Már Einarsson
Hjálmar Jónsson: Ég er ennþá Íslendingur
Hjálmar Jónsson.
Hjálmar Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Varnarmaðurinnn Hjálmar Jónsson er að hefja sitt ellefta tímabil með IFK Gautaborg en hann kann afar vel við sig hjá félaginu.

,,Mér hefur alltaf liðið vel hérna. Síðast þegar ég samdi vorum við með gott lið sem mér fannst geta náð lengra en því miður hafa síðustu tvö tímabil verið döpur hjá okkur," sagði Hjálmar þegar Fótbolti.net ræddi við hann í síðustu viku en Gautaborg var þá í æfingaferð á Benidorm á Spáni.

,,Þeir segja að ég sé orðinn mesti Svíinn í liðinu en ég held í íslensku böndin og er búinn að vera með Íslendinga sem samherja síðan Raggi kom árið 2007. Ég er ennþá Íslendingur."

Hjálmar lék lengi sem vinstri bakvörður hjá Gautaborg en nú er hann kominn í hjarta varnarinnar hjá liðinu.

,,Þetta er ný staða og mér líkar vel við hana. Hún passar þegar ég verð kominn á efri ár og ég hef hug á að spila þessa stöðu áfram."

Hjálmar á 18 leiki að baki með A-landsliði Íslands en síðasti landsleikur hans var árið 2008.

,,Ég hef greinilega ekki verið nógu góður en ég vona að ég fái tækifæri aftur," sagði Hjálmar sem var í fyrsta æfingahóp Lars Lagerback í síðasta mánuði.

,,Ég hef fylgst með honum í gegnum tíðina. Hann er búinn að vera landsliðsþjálfari hérna síðan ég kom út og ég veit hvernig hann vill að formið á liðinu sé. Mér leist mjög vel á hugmyndirnar sem hann bar fram."

Hjálmar er uppalinn hjá Hetti á Egilsstöðum og var hæstánægður þegar liðið komst upp í fyrstu deild síðastliðið haust. Er möguleiki á að hann endi ferilinn á heimaslóðum?

,,Ég ætla að láta það ósagt en maður veit aldrei í fótboltanum. Það væri mjög gaman en ég get ekki lofað því. Ég á þetta tímabil eftir hérna úti og síðan verður að koma í ljós hvað verður."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni
Slapp
banner
banner