Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. febrúar 2012 14:30
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Sportrásin 
Guðlaugur Victor: Hef ekki í mér að strauja Beckham
Guðlaugur Victor Pálsson gekk nýverið í raðir New York Red Bulls í bandarísku MLS-deildinni eftir að hafa verið leystur undan samningi við Hibernian í Skotlandi. Hann verður fyrsti Íslendingurinn til að spila í deildinni.

Guðlaugur Victor var í viðtali við Þórð Helga Þórðarson á Sportrásinni á Rás 2 í gær.

„Þetta kom þannig til að gamli þjálfarinn minn hjá AGF í Danmörku vinnur fyrir Red Bulls um allan heim. Þeir eru með lið í Austurríki, Gana, Brasilíu og svo náttúrulega New York. Hann var búinn að láta þá vita af mér og svo mættu þeir og sáu einhverja fimm leiki með mér hjá Hibernian," sagði Guðlaugur.

„Þegar það kom í ljós að ég væri hættur hjá Hibs þá fékk ég símtal strax frá þeim. Þeirra framkvæmdastjóri er frá Noregi og ég fundaði með þeim."

„Það var áhugi frá Norðurlöndunum og neðri deildunum á Englandi en þegar þetta kom í ljós þá vissi ég strax að þetta var það sem ég vildi. Þetta var bæði mest spennandi og ég vildi prófa eitthvað nýtt, fara til Bandaríkjanna í örugglega skemmtilegustu borg í heimi."

Hækkar í launum
Gegnsæi er í launagreiðslum í bandarísku deildinni og er Guðlaugur með betri laun hjá Red Bulls en hann hafði hjá Hibernian.

„Launin eru betri en þau sem ég var með í Skotlandi ef ég á að segja eins og er. Það er þannig í bandarísku deildinni að öll laun eru opinber svo fólk ætti að geta séð það bara á einhverri heimasíðu hvað maður er að fá," sagði Guðlaugur sem er nú í æfingaferð í Mexíkó.

„Heilt yfir lýst mér rosalega vel á þetta. Hópurinn hefur verið frábær og það hefur verið tekið rosalega vel á móti manni. Þjálfarateymið er skandinavískt og maður veit vel hvernig það vill spila. Vonandi fær maður að spila."

Meðal nýrra liðsfélaga hans er Thierry Henry sem nú er á lánssamningi hjá Arsenal og varnarmaðurinn Rafael Marquez sem var hjá Barcelona. Þekktasti leikmaður deildarinnar er þó David Beckham hjá LA Galaxy. Guðlaugur var spurður hvort tilhugsunin að fá að strauja Beckham væri ekkert að kitla?

„Ég sýni honum það mikla virðingu að ég held að ég myndi ekki hafa það í mér að strauja hann," sagði Guðlaugur Victor á Sportrásinni. Tímabilið í Bandaríkjunum hefst í mars en deildinni lýkur í nóvember.
Slapp
banner