Edwin van der Sar, fyrrum markvörður Manchester United, segir að David de Gea verði að læra að höndla pressuna sem fylgir því að verja mark Englandsmeistarana.
De Gea var keyptur á 18 milljónir punda frá Atletico Madrid en ekki staðið undir væntingum sem arftaki Van der Sar sem lagði hanskana á hilluna síðasta sumars.
De Gea var keyptur á 18 milljónir punda frá Atletico Madrid en ekki staðið undir væntingum sem arftaki Van der Sar sem lagði hanskana á hilluna síðasta sumars.
„Það er alltaf erfitt að koma í nýtt félag og nýja deild, sérstaklega þá ensku. Það er mikils vænst af manni og getur verið erfitt. Hann verður að höndla það," segir Van der Sar.
Þegar Paul Scholes tók fram skóna að nýju voru margir sem veltu því fyrir sér hvort Sir Alex Ferguson myndi ekki draga Van der Sar á flot einnig.
„Ég fékk nokkur sms-skilaboð frá vinum mínum sem spurðu: 'Hvað með þig?'. Ég er sáttur í dag. Ég er ekki á leiðinni aftur."




