Heimild: BBC
Heimssamband atvinnufótboltamanna opinberar í dag skýrslu úr ítarlegri rannsókn á hagræðingu úrslita, kynþáttafordómum og ofbeldi í evrópskum fótbolta.
Nærri fjórðungur leikmanna (23,6%) eru meðvitaðir um hagræðingu úrslita í þeirri deild sem þeir spila í. Í Rússlandi nær talan 43,5%.
Nærri fjórðungur leikmanna (23,6%) eru meðvitaðir um hagræðingu úrslita í þeirri deild sem þeir spila í. Í Rússlandi nær talan 43,5%.
Niðurstöður sýna að 11,9% af fótboltamönnum hafa verið beðnir um að hafa áhrif á úrslit úr leik, prósentutalan fer upp í 30,3% í Grikklandi.
41,1% leikmanna hafa ekki fengið borguð laun á réttum tíma en meiri helmingur þeirra sögðust íhuga að taka þátt í hagræðingu úrslita.
Einn af hverjum níu sem tóku þátt í rannsókninni sögðust hafa orðið fyrir barðinu á ofbeldi sem leikmaður, 8,3% af þeim fórnarlömbum urðu fyrir barðinu á þjálfara sínum.
Niðurstöðurnar vekja upp áhyggjur innan fótboltahreyfingarinnar. Í Austur-Evrópu eru margir leikmenn sem fá ekki greiðslur samkvæmt samningum og eru líklegir til að taka þátt í hagræðingu úrslita.
UEFA tilkynnti nýverið að sambandið væri í samstarfi við Interpol í að berjast gegn spillingu og hagræðingu leikja.
Þegar kemur að kynþáttafordómum í skýrslunni segjast 65% þeirra sem hafa orðið vitni að kynþáttaníð á vellinum að þeir komi aðallega frá áhorfendum.


