Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. febrúar 2012 16:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Bold.dk 
Arnar Darri: Myndi berjast við Petr Cech um stöðu í liðinu
Arnar Darri á æfingu með U21-landsliðinu.
Arnar Darri á æfingu með U21-landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Darri Pétursson segist vera tilbúinn að grípa tækifærið í marki SønderjyskE í fjarveru Nathan Coe sem er frá keppni vegna meiðsla. Coe er aðalmarkvörður SønderjyskE en útlit er fyrir að hann verði ekki klár þegar SønderjyskE mætir Bröndby í fyrsta leik eftir vetrarfrí þann 4. mars næstkomandi.

Hinn tvítugi Arnar Darri hefur verið varamarkvörður hjá SønderjyskE en hann segist vera tilbúinn að grípa tækifærið núna.

,,Það má segja að ég hafi beðið í eitt og hálft ár eftir þessum möguleika. Ég vona auðvitað það besta fyrir Nathan en ég er klár í að grípa tækifærið og sýna hvað ég get," sagði Arnar Darri við bold.dk en hann hefur staðið á milli stanganna í æfingalekjunum hjá SønderjyskE að undanförnu.

SønderjyskE er í leit að samningslausum markverði vegna meiðsla Coe en Arnar Darri segist ekki hræðast samkeppnina.

,,Ég hef ekki hugsað svo mikið út í hana. Ég býst við að félagið fá nýjan markvörð en hversu öflugur hann er veit ég ekki."

,,Ég mun hins vegar undir öllum kringumstæðum veita honum samkeppni. Ég hræðist engan. Ef þeir fá Petr Cech þá mun ég berjast við hann,"
sagði Arnar Darri sem fékk sénsinn hjá Lyn í norsku úrvalsdeildinni árið 2010.

,,Ég spilaði leik í Tippeligan og það gekk mjög vel en ég var bara 18-19 ára. Ég hef bætt mig mikið síðan þá og meðal annars spilað með U21 árs landsliði Íslands. Ég vonast eftir að fá tækifærið og ég tel að ég sé klár í þetta."
Slapp
banner
banner
banner