Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 07. febrúar 2012 18:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Patrice Evra: Ótrúleg meiðsli hjá okkur
Patrice Evra, varnarmaður Manchester United, hefur hrósað leikmönnum liðsins fyrir það hvernig þeir hafa brugðist við miklum meiðslum á þessu tímabili.

Evra er með fyrirliðabandið hjá United þessa dagana eftir að Nemanja Vidic sleit krossband í desember. Af varnarmönnum United hafa Rio Ferdinand, Phil Jones, Chris Smalling og Rafael einnig verið frá keppni í nokkrar vikur á tímabilinu.

Miðjumennirnir Tom Cleverley, Ashley Young, Anderson og Darren Fletcher hafa einnig misst af hluta tímabilsins og Evra er ánægður með að United hafi haldið sér í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir þessi skakkaföll.

,,Það er ótrúlegt hvað við höfum lent í miklum meiðslum. Ég hef séð mörg lið kvarta undan meiðslum sem þau hafa lent í en þetta hefur verið ótrúlegt hjá okkur," sagði Evra.

,,Við missum leikmann eins og Nemanja Vidic úr tímabilið en náum samt að ráða við það."

,,Það að vera svona nálægt Manchester City eftir meiðslin sem við höfum lent í sýnir hvað það er góður andi í liðinu. Það er mikilvægast og þetta er hefðin hjá félaginu."

,,Sama hvað gerist þá viljum við ekki vera með afsakanir. Ég segi bara 'vel gert' við alla leikmenn en verkinu er ekki lokið. Mikilvægast hluti tímabilsins er eftir."

Slapp