Heimild: Fréttablað Suðurlands
Framkvæmdir eru nú hafnar við loftbóluhúsið í Hveragerði en um er að ræða fyrsta íþróttahúsið af þessari tegund hér á landi.
Stefnan er sett á að taka húsið í notkun á Blómstrandi dögum í Hveragerði í ágúst í sumar.
Stefnan er sett á að taka húsið í notkun á Blómstrandi dögum í Hveragerði í ágúst í sumar.
Húsið er hannað fyrir 300 áhorfendur en séu fleiri í húsinu þarf slökkviliðið að vakta það sérstaklega.
Hamarshöllin er nafnið á nýja húsinu en um er að ræða fjölnota íþróttahöll sem hýsir gervigrasvöll og fjölnota íþróttagólf í fullri stærð.
Íþróttahöllin verður um 5000 fermetrar og upphituð úr tvöföldum dúk sem er borinn uppi af innri loftþrýstingi og loftþrýstingi á milli ytra og innra lags í útveggjum og þaki. Áætlaður kostnaður við húsið er um 230 milljónir.

