Willian mun fara til Chelsea í sumar. Þetta segir forseti brasilíska félagsins Santos sem vildi fá þennan leikmann frá Shaktar Donetsk.
Willian er 23 ára og var orðaður við Chelsea í janúarglugganum. Í viðtali lýsti hann yfir vilja sínum á að ganga í raðir félagsins.
Willian er 23 ára og var orðaður við Chelsea í janúarglugganum. Í viðtali lýsti hann yfir vilja sínum á að ganga í raðir félagsins.
Um er að ræða sókndjarfan miðjumann sem á tvo A-landsleiki að baki fyrir Brasilíu.
Þá segja sögur að Chelsea ætli að reyna að tryggja sér vængmanninn Milos Krasic frá Juventus næsta sumar.



