Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. febrúar 2012 20:30
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sporting Life 
Villas-Boas: Capello hefur rétt á sinni skoðun
Andre Villas-Boas stjóri Chelsea segir að Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands hafi átt fullan rétt á því að láta óánægju sína í ljós eftir að knattspyrnusambandið svipti John Terry fyrirliðabandinu.

Capello sagði við ítalska sjónvarpið að hann væri ekki sammála ákvörðun knattspyrnusambandsins, en Terry var sviptur fyrirliðabandinu síðasta föstudag.

,,Hann hefur fullan rétt á að hafa skoðun á málinu og að verja leikmanninn," sagði Villas-Boas.

Þessi skoðun Villas-Boas kemur líkast til ekki á óvart þar sem John Terry er einmitt fyrirliði Chelsea. Varnarmaðurinn hyggst þó ekki ætla að leggja landsliðsskóna á hilluna, öndvert við það sem enskir fjölmiðlar héldu fram um helgina.
Slapp
banner
banner
banner