Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. febrúar 2012 21:23
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Soccerway 
Ferguson vill að hart verði tekið á fordómum
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United vill að hart verði tekið á öllum kynþáttafordómum í kjölfar atburða síðustu mánaða.

Luis Suarez leikmaður Liverpool kom í gær úr átta leikja banni sem hann fékk fyrir kynþáttaníð í garð Patrice Evra, leikmanns United, og þá á John Terry að mæta fyrir rétt í júlí fyrir meinta fordóma í garð Anton Ferdinand hjá QPR.

Auk þess hefur það gerst ítrekað að stuðningsmenn kalli ókvæðisorð tengd kynþáttum leikmanna úr stúkunni, og er Ferguson ekki ánægður með að slík hegðun skuli eiga sér stað.

,,Ég skil bara alls ekki hvaðan þetta kemur," sagði Ferguson við CNN.

,,Þetta er tíminn til að taka hart á þessu og sjá til þess að þetta komi ekki aftur upp á yfirborðið. Við verðum að bregðast harkalega við öllum tegundum kynþáttafordóma."

,,Það eru því miður dæmi um að þetta hafi á sér stað og maður trúir því ekki á árinu 2012. Þetta var augljóst fyrir 20 árum en það hafa allir séð framfarirnar síðan þá."

Slapp
banner