Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 07. febrúar 2012 21:44
Alexander Freyr Tamimi
Enski bikarinn: Blackpool og Millwall áfram
Blackpool og Millwall voru rétt í þessu að tryggja sér sæti í næstu umferð enska bikarsins. Blackpool mun mæta Everton en Millwall fær Bolton í heimsókn.

Blackpool átti í raun ekki í miklum vandræðum þegar þeir mættu Sheffield Wednesday á útivelli eftir jafntefli í fyrri leiknum. Matt Phillips kom gestunum yfir strax á sjöundu mínútu, og öðrum sjö mínútum síðar var Lomama Lualua búinn að bæta við öðru markinu.

Ludovic Sylvestre tryggði svo endanlega sigurinn þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og Blackpool því komnir áfram.

Dramatíkin var talsvert meiri í seinni leiknum þar sem Millwall heimsótti Southampton. Gestirnir komust yfir á 17. mínútu með marki frá Liam Trotter, en hins vegar jöfnuðu heimamenn metin fyrir leikhlé og var staðan 1-1 í hálfleik.

Útlitið var svo orðið ansi gott fyrir Southampton á 77. mínútu þegar Rickie Lambert kom þeim yfir, en gestirnir voru þó ekki á þeim buxunum að gefast upp.

Dany N'Guessan jafnaði nefnilega metin, einungis tveimur mínútum síðar, og í uppbótartíma skoraði Liam Feeney svo sigurmarkið fyrir Millwall og skaut þeim áfram á dramatískan hátt.

Southampton 2 - 2 Millwall
0-1 Liam Trotter ('17 )
1-1 Adam Lallana ('35 )
2-1 Rickie Lambert ('77 )
2-2 Dany N'Guessan ('79 )
2-3 Liam Feeney ('90 )

Sheffield Wed 0 - 3 Blackpool
0-1 Matt Phillips ('7 )
0-2 Lomama Lualua ('14 )
0-3 Ludovic Sylvestre ('54 )
Slapp
banner
banner