Heimild: Goal.com
Brad Friedel markvörður Tottenham segir að liðsfélagi sinn, Scott Parker, eigi skilið að bera fyrirliðaband enska landsliðsins á Evrópumótinu 2012.
Líkt og flestir vita var John Terry sviptur fyrirliðabandinu á föstudag og telur Bandaríkjamaðurinn Friedel að Parker sé betur í stakk búinn en þeir Joe Hart og Steven Gerrard til að gegna þessu mikilvæga hlutverki.
,,Joe Hart hefur hugarfarið til að vera fyrirliði en það hafa þeir Steven Gerrard og Scott Parker einnig," sagði Friedel við talkSPORT.
,,Gæti Joe höndlað starfið? Klárlega. Joe er frábær markvörður með hausinn á réttum stað. En Scott Parker og Steven Gerrard eru frábærir leikmenn."
,,Eftir að hafa spilað með Scotty í hálft ár sér maður að hann er fæddur fyrirliði, hvort sem hann er með bandið eður ei. Hann er alger fagmaður, hann lifir lífinu á réttan hátt, og á vellinum er hann besti djúpi miðjumaður sem ég hef spilað með."


