Birmingham 1 - 0 Portsmouth
1-0 Nathan Redmond ('86 )
1-0 Nathan Redmond ('86 )
Nathan Redmond tryggði Birmingham 1-0 sigur gegn Portsmouth með stórglæsilegu marki þegar liðin mættust í Championship deildinni í kvöld.
Þessi 17 ára vonarstjarna kom inn á með mikið líf í sóknarleik Birmingham, sem hafði verið býsna dapur fram að þessu. Viðstöðulaust mark hans á 86. mínútu reyndist duga til sigurs gegn Portsmouth liði sem barðist fyrst og fremst um eitt stig.
Jordon Mutch var ekki fjarri því að koma Birmingham yfir þegar hann átti skot af 25 metra færi í stöngina, en liðið hefur verið á miklu skriði undir lok leikja sinna og skorað 20 sinnum á síðustu níu mínútunum. Þeir eru nú tveimur stigum frá öruggu sæti í úrvalsdeildinni.





