Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 07. febrúar 2012 23:09
Alexander Freyr Tamimi
Spænski bikarinn: Úti er ævintýri fyrir Mirandes
Ævintýri bankastarfsmannsins Pablo Infante og félaga í Mirandes er á enda.
Ævintýri bankastarfsmannsins Pablo Infante og félaga í Mirandes er á enda.
Mynd: CD Mirandes
Athletic Bilbao 6 - 2 Mirandes
1-0 Iker Muniain ('11)
2-0 Markel Susaeta ('14)
3-0 Jon Aurtenetxe ('22)
3-1 Aitor Blanco ('57)
4-1 Fernando Llorente ('71)
5-1 Fernando Llorente ('75)
5-2 Aitor Blanco ('86)
6-2 Cesar Caneda ('88, sjálfsmark)

Athletic Bilbao batt í kvöld enda á öskubuskuævintýri Mirandes í spænska bikarnum þegar þeir unnu sannfærandi 6-2 sigur í seinni viðureign liðanna í Baskahéraði. Samtals vann Athletic Bilbao 8-3, en Fernando Llorente skoraði bæði mörk þeirra í 2-1 útisigri fyrir viku.

Llorente var aftur með tvennu í kvöld en þeir Iker Muniain, Markel Susaeta og Jon Aurtenetxe lögðu grunninn að sigrinum með því að koma Athletic Bilbao í 3-0 á fyrstu 22 mínútunum.

Aitor Blanco náði að skora tvö mörk fyrir gestina í seinni hálfleik en það var þó langt frá því að duga til. Bilbao mun því mæta Barcelona eða Valencia í úrslitunum.

Mirandes vann þrjú lið úr efstu deild til að komast í úrslitaleikinn og höfðu unnið fótboltaáhugamenn um víða veröld á sitt band. En nú er ævintýrinu lokið að sinni.
Slapp
banner