Heimild: Sky
Luis Suarez, framherji Liverpool, býst við að fá óblíðar móttökur þegar liðið heimsækir Manchester United á laugardag.
Suarez er nýbúinn að afplána átta leikja bann eftir að hafa verið sakaður um að vera með kynþáttafordóma í garð Patrice Evra í leik Liverpool og Manchester United í október.
Suarez er nýbúinn að afplána átta leikja bann eftir að hafa verið sakaður um að vera með kynþáttafordóma í garð Patrice Evra í leik Liverpool og Manchester United í október.
Suarez segir að það muni hins vegar einungis hvetja sig áfram í leiknum á laugardag ef stuðningsmenn Manchester United láta hann heyra það.
,,Ég veit að það verður taugaspenna gegn Man Utd því að ég mæti Evra. Ég er vanur því að stuðningsmenn flauti á mig," sagði Suarez.
,,Ég vona að ekkert óvenjulegt gerist. Ég verð að gleyma því sem gerðist eitt augnablik."
,,Ég veit að stuðningsmenn Man Utd munu reyna að láta mér líða illa en þeir munu hins vegar einungis hvetja mig áfram ef að þeir flauta á mig."




