Heimild: Sky
Nicolas Anelka segist ekki sjá eftir því að hafa yfirgefið herbúðir Chelsea til að ganga í raðir Shanghai Shenhua í Kína.
Anelka vildi ekki skrifa undir nýjan samning við Chelsea og því var hann látinn æfa með unglingaliðinu undir lok síðasta árs ásamt Alex sem var í sömu stöðu. Anelka fór síðan til Kína á meðan Alex samdi við PSG.
,,Eftir að mér var refsað létu þeir mig æfa með unglingunum. Ég var í sama æfingabúnaði og atvinnumennirnir en þeir settu mig í annan búningsklefa, svona er fótboltinn," sagði Anelka.
,,Einn daginn getur þú verið að skora mörk og gera allt sem þú getur fyrir liðið en þann dag sem þú yfirgefur félagið færðu enga samúð."
,,Þess vegna máttu ekki vera leiður daginn sem þú ákveður að fara heldur halda áfram að gera það sem þú átt að gera því að það eru engir vinir í fótbolta."
,,Það er sannleikurinn. Það er leiðinlegt að segja það en þetta er sannleikurinn. Þetta er liðsíþrótt en líka einstaklingsíþrótt að stóru leyti."
,,Það er satt að ég hefði getað átt betri feril en ég veit að ég hef náð langt og ég er mjög stoltur þegar ég fer aftur til Frakklands, aftur í hverfið þar sem ég ólst upp, mennirnir þar eru stoltir af mér. Þeir vita að ég gafst aldrei upp. Ég hef lent í ýmsu en ég er ennþá hér."


