Heimild: AP
Dimitar Berbatov, leikmaður Manchester United á Englandi segist opinn fyrir því að snúa aftur í búlgarska landsliðið.
Berbatov, sem er 31 árs gamall lagði skóna á hilluna árið 2010 með Búlgaríu en hann taldi þá vera of mikið stress í hópnum og að hann ætlaði að einbeita sér að fjölskyldu sinni og feril sínum hjá Man Utd.
Hann er þó tilbúinn að taka fram skóna á ný með landsliðinu og býst við kalli frá Lyuboslav Penev þjálfara Búlgaríu.
Dimitar lék sinn fyrsta landsleik árið 1999, en síðan þá hefur hann spilað 77 leiki og skorað 48 mörk. Hann er jafnframt markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi svo það er ljóst að hann yrði mikill styrkur fyrir liðið.


