Heimild: Sky
David De Gea segist ætla að vera hjá Manchester United í mörg ár til viðbótar. Þessi 21 árs gamli Spánverji hefur legið undir gagnrýni í vetur en hann er staðráðinn í að sanna sig á Old Trafford.
,,Ég stefni á að eyða mörgum árum hjá Manchester United. Ég vil verða frábær markvörður fyrir United og reyna að öðlast virðingu. Ég vil hjálpa United að komast í sögubækurnar," sagði De Gea sem segir það hafa tekið tíma að aðlagast ensku úrvalsdeildinni.
,,Ég held að það sé óhætt að segja að La Liga og enska úrvalsdeildin eru tvær bestu deildir í heimi. Það er vel þekkt að leikstíllinn hér er harðari og sem markvörður þá verður þú að vera klár í það. Þú verður að vera vakandi allan leikinn."
,,Leikmennirnir sem mæta þér geta skotið hvar sem er. Þú verður að vera klár því að þú gætir fengði langskot á þig hvenær sem er."
,,Það eru líka mikið af fyrirgjöfum hjá liðum, mikið af háum boltum og baráttu í loftinu. Þú verður að vera klár í að komast fyrir og stöðva skotin. Ég vissi þegar að ég kom til United að þetta væri leikstíllinn svo ég var nokkuðk klár í þetta og hafði strax trú á mér."


