Harry Redknapp, stjóri Tottenham, og Milan Mandaric fyrrum eigandi Portsmouth hafa verið sýknaðir af öllum ákærum en þeir voru sakaðir um skattsvik.
Réttarhöld í málinu hafa staðið yfir í 13 daga en Redknapp og Mandaric voru sýknaðir í morgun og þeir föðmust í réttarsalnum þegar dómurinn var kveðinn upp.
Redknapp og Mandaric voru ákærðir fyrir skattsvik í kringum sölu Portsmouth á Peter Crouch á sínum tíma.
Redknapp var sakaður um að hafa tekið á móti bónusgreiðslum frá Mandaric án þess að borga skatta en hann neitaði sök í málinu og sagði greiðsluna ekki tengjast starfinu hjá Portsmouth.
Redknapp hefur verið orðaður við landsliðsþjálfarstöðuna hjá Englendingum og líkurnar á að hann taki við af Fabio Capello eru búnar að aukast eftir að hann var sýknaður í dag.



