Heimild: Sky
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var ánægður eftir að hafa verið sýknaður af ákærum um skattalagabrot í morgun. Lögregla hefur eytt átta milljónum punda í að rannsaka málið undanfarin fimm ár en Redknapp var sakaður um að hafa þegið 189 þúsund pund í bónusgreiðslur frá Milan Mandaric eiganda Portsmouth á sínum tíma án þess að borga skatt.
Réttarhöld í málinu hafa staðið yfir í þrettán daga en á endanum voru Redknapp og Mandaric sýknaðir.
,,Ég vil þakka lögfræðiliði mínu, það stóð sig frábærlega. Ég hef fengið stuðning frá öllum hjá Tottenham og stuðning frá Daniel Levy (formanni Tottenham) sem hefði aldrei ráði mig í starfið fyrir þremur árum ef að hann hefði trú á að þetta yrði vandamál," sagði Redknapp.
,,Hann veit að þetta mál hefði aldrei átt að fara fyrir rétt og ég verð að þakka stuðningsmönnunum hjá Tottenham. Leikurinn gegn Wigan var mjög hjartnæmur. Þegar nafn mitt var sungið allan leikinn á meðan þetta var í gangi verður alltaf sérstakt fyrir mig og ég mun aldrei gleyma því."
,,Það mikilvægasta er auðvitað fjölskylda mín sem hefur gengið í gegnum súrt og sætt undanfarin fimm ár þegar þetta hefur verið hangandi yfir okkur. Ég hlakka til að koma heim og sjá Söndru eiginkonu mína og losna við þetta allt saman."
,,Þetta hefur verið algjört martröð. Það eru fimm ár liðin og þetta hefði aldrei átt að fara fyrir rétt. Þetta var hryllilegt. Þetta var einhliða ákvörðun. Kviðdómurinn var algjörlega sammála og ég þurfti ekki að svara fyrir neitt. Ég er ánægður með að geta farið heim og haldið lífi mínu áfram."


