Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 08. febrúar 2012 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: BBC 
Le Saux vill meiri stuðning fyrir samkynhneigða leikmenn
Graeme Le Saux, fyrrum leikmaður Chelsea og enska landsliðsins hefur beðið um meiri stuðning fyrir samkynhneigða knattspyrnumenn.

Mörgum er kunnugt það mál er Le Saux var bendlaður við samkynhneigð. Birt var grein þess efnis þar sem var fullyrt var að leikmaðurinn væri fyrir sama kyn, en þrátt fyrir að það hafði ekki verið neitt sannleikskorn í því þá fylgdi það með honum allan ferilinn.

Hann kom í viðtali í útvarpsþætti á BBC á dögunum þar sem hann bað um meiri stuðning fyrir samkynhneigða leikmenn.

,,Það skiptir ekki máli hvort það séu samkynhneigðir leikmenn í knattspyrnunni eða ekki, það er ekki vandamálið," sagði Le Saux.

,,Það sem ég er að segja er að umhverfið þarf að vera þannig að leikmenn geti afrekað markmið sín í knattspyrnunni og geti fengið stuðning en það umhverfi er ekki enn orðið að veruleika."

,,Það er undir fótboltanum komið til þess að eyða þessu og að geta sagt að við ætlum að standa upp fyrir fólki sama af hvaða kynþætti, stétt eða kynhneigð leikmenn eru og í raun gefa þeim tækifæri á segja ,,Ef ég vil vera knattspyrnumaður þá ætla ég að láta á það reyna,, ,"
sagði hann enn fremur.

Robbie Fowler, fyrrum leikmaður Liverpool og samherji Le Saux í enska landsliðinu niðurlægði leikmanninn á sínum tíma er Chelsea og Liverpool mættust í enska bikarnum rétt eftir að greinin var birt um Le Saux, en hann var sífellt að beygja sig fyrir framan hann og gefa í skyn að hann væri samkynhneigður.

,,Þetta var gríðarlega móðgandi fyrir mig að sjá samherja minn í enska landsliðinu haga sér svona á vellinum út frá orðróm sem kom í blöðunum."

,,Ég hitti Fowler eftir þetta atvik í ferð með enska landsliðinu, en hann baðst aldrei afsökunar á framferði sínu, ekki einu sinni undir fjögur augu,"
sagði hann að lokum.
Slapp