Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 08. febrúar 2012 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Goal.com 
Terry ekki í auglýsingum Umbro - Óvíst með framhaldið
Enski sportframleiðandinn Umbro hefur tilkynnt að John Terry fyrirliði Chelsea komi ekki til með að vera í auglýsingum né herferð fyrirtækisins á næstunni.

Terry, sem er 31 árs gamall var í síðustu viku sviptur fyrirliðabandi enska landsliðsins af enska knattspyrnusambandinu en hann er sakaður um að hafa verið með kynþáttaníð í garð Anton Ferdinand hjá QPR er liðið mætti Chelsea í október á síðasta ári.

Réttarhöldum í málinu hefur verið frestað til 9. júlí, en það þýðir að hann geti leikið með Chelsea út tímabilið og spilað á EM í Úkraínu í sumar.

Eins og fyrr segir þá missti hann fyrirliðabandið hjá enska landsliðinu, en nú virðist hann vera á góðri leið með að missa samning sinn hjá Umbro þar sem framleiðandinn hefur ákveðið að hafa hann ekki með í auglýsingum og herferðum á meðan málið er í gangi.

,,John er ekki partur af núverandi herferðum okkar eða auglýsingum og ég get ekki rætt það hvort hann verði það í framtíðinni eða hvaða leikmenn taka þátt í herferðinni," sagði talsmaður Umbro.

,,Hann verður þó áfram styrktur af Umbro meðan málið er í gangi. Það er satt að við erum að leita að nýjum leikmönnum til þess að auglýsa vörurnar okkar og við erum alltaf að leita að hæfileikaríkum knattspyrnumönnu," sagði hann að lokum.

Samningur Terry við Umbro rennur út í sumar, en hann hefur verið ein stærsta ímynd framleiðandans undanfarin ár.

Þá virðist vera sem svo að Samsung, einn aðal styrktaraðili Chelsea hafi fjarlægt sig frá Terry en í yfirlýsingu fyrirtækisins segir að Samsung sé ekki tengt leikmönnum á neinn hátt heldur einungis félaginu.
Slapp
banner
banner