„Verðum örlítið betur mannaðir á komandi tímabili"
Ljóst er að Brynjar Björn Gunnarsson er á leið heim úr atvinnumennsku í vor en hann ætlar að ganga til liðs við Íslands- og bikarmeistara KR. Þessi frétt kemur ekki mjög á óvart enda flestir sem bjuggust við að Brynjar myndi ljúka ferlinum með KR.
„Brynjar er uppalinn hjá KR og hefur verið lengi úti í atvinnumennsku. Það liggur nokkuð ljóst fyrir að þegar menn snúa heim og hafa þann áhuga sem hann hefur þá fara flestir í sitt uppeldisfélag. Brynjar er búsettur nálægt KR og það lá ljóst fyrir að hann vildi spila fyrir okkur. Þetta er engin brjálæðisleg frétt í mínum huga,“ segir Rúnar Kristinsson, þjálfari KR.
Ljóst er að með tilkomu Brynjars eykst breiddin á miðjunni hjá KR enn frekar en Rúnar hugsar hann einnig í hjarta varnarinna.
„Brynjar er þeim hæfileikum gæddur að hann getur spilað víða á vellinum. Hann getur spilað allar miðjustöðurnar fyrir mig, miðvörð og bakvörðinn. Ég hef þó ekki verið að horfa á hann sem bakvörð, frekar miðvörð eða miðjumann"
„Hann er ánægður með standið og hefur æft vel undanfarið þó hann hafi kannski ekki spilað mikið. Hann hefur verið að spila með varaliðinu þá leiki sem hafa verið í boði og hefur verið nokkuð heill í þeim. Hann hefur átt við sín meiðsli að stríða gegnum tíðina en komið sterkur til baka."
„Hann er með mikla reynslu og er sterkur karakter. Hann er karakter sem allir vilja hafa í sínu liði og er frábær viðbót við þann hóp sem ég er með," segir Rúnar en samkeppnin um sæti í liði Íslandsmeistarana er gríðarleg.
„Ef allir eru heilir þá er þetta vandamál fyrir okkur þjálfarana en það er eitthvað sem við viljum takast á við. Ég vil frekar hafa fleiri en færri. Við lentum í því í fyrra að við þurftum að færa menn til og láta þá spila stöður sem þeir voru kannski ekki vanir að spila þegar upp komu leikbönn og meiðsli. Ég hugsa að við verðum örlítið betur mannaðir á komandi tímabili en í fyrra."
Þarf ekki framherja
Hyggst Rúnar bæta framherja við hópinn fyrir sumarið? „Nei ég þarf ekki framherja, við erum ekki að skoða neitt. Brynjar var eini leikmaðurinn sem var verið að vinna í að bæta við þennan hóp, það var alveg undir honum komið. Það hafa þó engir samningar verið gerðir enn þó vilji beggja aðila sé fyrir hendi."
KA-maðurinn Haukur Heiðar Hauksson og Þórsarinn Atli Sigurjónsson komu til KR í vetur og er Rúnar mjög ánægður með hvernig þeir hafa fallið inn í hópinn.
„Ég er mjög ánægður með þá. Menn eru að kynnast nýjum mönnum og nýjum aðstæðum. Þeir hafa aðlagast hópnum vel og ég er mjög ánægður með þá," segir Rúnar.
KR leikur á morgun gegn Fylki í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins. Sigurliðið mun mæta Fram eða Þrótti í úrslitaleiknum. „Við ætlum að reyna að vinna þennan leik á morgun og komast í úrslitaleikinn. Við gerum okkar besta og þó þetta sé æfingamót viljum við vinna þau mót sem við tökum þátt í," segir Rúnar.



