Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 08. febrúar 2012 17:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: DV 
Gylfi Orra: Skýrsla sem á ekki að birta opinberlega
Gylfi að lyfta rauða spjaldinu fyrir nokkrum árum.
Gylfi að lyfta rauða spjaldinu fyrir nokkrum árum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á ársþingi KSÍ á laugardaginn liggja fyrir nokkrar athyglisverðar breytingatillögur. Ein af þeim er að skýrsla dómara á Íslandsmótinu verði opinberuð á heimasíðu KSÍ.

Ef tillagan verður samþykkt geta því allir séð það sem dómararnir rita til aganefndar ef leikmaður fær brottvísun í leik.

Gylfi Þór Orrason, formaður dómaranefndar og varaformaður KSÍ, er ekki hrifinn af þessari tillögu. Í viðtali við DV segir hann að skýrsla dómara til aganefndar sé ekki hluti af leikskýrslu.

„Þetta er bara ekki framkvæmanlegt að mínu viti. Sá texti sem dómari skrifar til aganefndar er ekki partur af leiknum og hann á ekki að vera birtur á netinu fyrir alla að gúgla um allan heim," segir Gylfi.

Líklegt er að tillagan verði samþykkt en að henni standa þrettán félög, flest af þeim í Pepsi-deildinni.

„Liðin geta sóst eftir því að sjá skýrslurnar til aganefndar og það á frekar að vera vinnuregla hjá félögunum að sækjast eftir þeim. Þetta þekkist ekki hjá þjóðum í kringum okkur,“ segir Gylfi.
Slapp
banner
banner