Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 08. febrúar 2012 19:32
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: FA 
Fabio Capello hættur með enska landsliðið (Staðfest)
Ítalski þjálfarinn Fabio Capello hefur sagt af sér sem þjálfari enska landsliðsins, en enska knattspyrnusambandið greinir frá þessu í kvöld.

Capello tók við enska landsliðinu eftir að Steve McClaren mistókst að koma liðinu á EM 2008 en ítalska þjálfaranum tókst að stýra liðinu á HM í Suður-Afríku árið 2010. Hann náði þó litlum árangri þar, en liðið datt út í 16-liða úrslitum mótsins fyrir Þjóðverjum 4-1.

Hann tryggði svo liðinu þátttökurétt á EM í Úkraínu sem fer fram í sumar með ótrúlegum árangri en liðið tapaði ekki leik í undankeppninni.

Enska knattspyrnusambandið greindi þá frá því í kvöld að Capello væri búinn að segja af sér sem landsliðsþjálfari en ákvörðunin kemur í kjölfar þess að sambandið ákvað að svipta John Terry fyrirliðabandinu fyrr í vikunni.

Capello tók ekki vel í þá ákvörðun og hefur ítalski þjálfarinn nú ákveðið að láta þetta gott heita og hætta þjálfun landsliðsins. Óvíst er hver kemur til með að taka við, en margir eru farnir að tala um að Harry Redknapp stjóri Tottenham Hotspur taki við.
Slapp
banner