Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 08. febrúar 2012 20:12
Elvar Geir Magnússon
Jack Wilshere: Sleginn yfir fréttunum af Capello
„Sleginn yfir fréttunum um Fabio Capello," skrifar Jack Wilshere, leikmaður Arsenal, á Twitter. Wilshere lék sinn fyrsta landsleik undir stjórn Capello.

„Hann gaf mér minn fyrsta leik og hafði trú á mér! Þakka þér hr. Capello! #Frábær þjálfari."

„Fólk má hafa sitt álit á Capello en fyrir ungan leikmann sem hefur fengið tækifæri til að spila fyrir land sitt svona ungur... hann hefur sýnt mér mikla trú og treyst mér svo ég get bara þakkað honum... hafði gríðarleg áhrif á feril minn! Erfitt að sjá hann fara!"

Capello sagði í dag upp sem þjálfari Englands en eftir að enska knattspyrnusambandið tók fyrirliðabandið af John Terry fór allt á skrið.
Slapp
banner
banner
banner