Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 08. febrúar 2012 20:23
Elvar Geir Magnússon
Harry Redknapp líklegastur til að taka við - Pearce annar
Stuart Pearce þjálfari U21-landsliðs Englands.
Stuart Pearce þjálfari U21-landsliðs Englands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fabio Capello sagði í dag upp sem landsliðsþjálfari Englands en enska knattspyrnusambandið tilkynnti þetta í kvöld.

Capello var með 66,7% sigurhlutfall með enska liðinu, hærra en nokkur annar fastráðinn þjálfari Englands

Veðbankar telja líklegast að Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, taki við Englandi en í öðru sæti er Stuart Pearce, þjálfari U21-landsliðsins.

Harry Redknapp 1/4
Stuart Pearce 9/2
Alan Pardew 16-1
José Mourinho 16-1
Roy Hodgson 16-1

Fjölmiðlamenn á Englandi tala flestir fyrir því að Redknapp taki við starfinu. Hann er samt í erfiðri stöðu þar sem Tottenham er í möguleika á að verða Englandsmeistari.

Sumir sjá ekkert því til fyrirstöðu að hann sinni báðum störfum til sumars en einnig eru uppi hugmyndir um að Pearce sjái um landsliðið meðan Redknapp klári tímabilið með Tottenham.
Slapp
banner
banner
banner