Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 09. febrúar 2012 14:15
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Brendan Rodgers gerir nýjan samning við Swansea
Brendan Rodgers, stjóri Swansea, hefur krotað undir nýjan þriggja og hálfs árs samning við félagið.

Rodgers hafði verið á rúllandi samningi síðan hann tók við Swansea sumarið 2010.

Þessi 39 ára gamli Norður-Íri kom Swansea upp í úrvalsdeildina síðastliðið vor og hann hefur náð góðum árangri með liðið á þessu tímabili.

Swansea er sem stendur í tíunda sæti í úrvalsdeildinni en liðið hefur vakið athygli fyrir skemmtilegan leikstíl.

Rodgers fékk Gylfa Þór Sigurðsson til Swansea á láni frá Hoffenheim í síðasta mánuði en þekkjast frá því hjá Reading á sínum tíma.
Slapp