Spænsku stórliðin Real Madrid og Barcelona tróna á toppi lista Deloitte yfir tekjuhæstu fótboltafélögin 2011. Madrídarliðið var með 480 milljón evrur í tekjur (433 milljónir punda) en Barcelona með 451 milljón evra.
Af tólf efstu félögunum á listanum koma sex frá Englandi. Manchester City er í tólfta sætinu.
Af tólf efstu félögunum á listanum koma sex frá Englandi. Manchester City er í tólfta sætinu.
Af þeim 20 félögum sem skipa listann koma öll félögin frá fimm stærstu deildum Evrópu. Þess má geta að Championship-félagið West Ham var ekki langt frá því að komast á listann.
Manchester United er að dragast aftur úr spænsku stórliðunum en reikna má með United neðar á næsta lista eftir að liðinu mistókst að komst í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.
Peningadeildin - Topp tíu:
1. Real Madrid, Spáni - 479,5 milljónir evra
2. Barcelona, Spáni - 450,7
3. Manchester United, Englandi - 367
4. FC Bayern, Þýskalandi - 321,4
5. Arsenal, Englandi - 251,1
6. Chelsea, Englandi - 249,8
7. AC Milan, Ítalíu - 235,1
8. Inter, Ítalíu - 211,4
9. Liverpool, Englandi - 203,3
10. Schalke, Þýskalandi - 202,4



