Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 09. febrúar 2012 14:30
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Morgunútvarp Rásar 2 
„Minna mál að koma úr skápnum en menn telja"
Þórður Einarsson, þjálfari 2. flokks Leiknis.
Þórður Einarsson, þjálfari 2. flokks Leiknis.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Steindór Sigurjónsson, leikmaður Sindra.
Steindór Sigurjónsson, leikmaður Sindra.
Mynd: Aðsend
Samkynhneigð í fótbolta hefur mikið verið í umræðunni að undanförnu en enska knattspyrnusambandið hefur hrundið af stað herferð gegn hommafóbíu. Aðeins er vitað um einn íslenskan fótboltamann sem komið hefur út úr skápnum meðan hann spilar.

Málið var tekið fyrir í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun þar sem meðal annars var rætt við Þórð Einarsson, þjálfara 2. flokks Leiknis í Breiðholti.

„Ég held að viðhorfið sé þannig í dag að þetta sé ekkert stórmál í sjálfu sér. Ég held að það sé meira stórmál að koma út úr skápnum í augum þess sem er samkynhneigður, hann telji að þetta sé meira mál en það yrði í raun og veru," segir Þórður.

Steindór Sigurjónsson, leikmaður Sindra á Hornafirði, var einnig í viðtali og var sammála þessum orðum Þórðar. Steindór er sjálfur kominn út úr skápnum en hann segir að því hafi verið tekið vel af liðsfélögum sínum þegar hann sannfærði sjálfan sig og steig skrefið.

Smelltu hér til að lesa stutt viðtal við Steindór sem birtisti á Fótbolta.net sumarið 2010.

Þórður er á því að mun meira mál virðist vera fyrir stráka en stelpur að koma út úr skápnum. „Maður verður að vera svo harður og sterkur í boltanum og það fittar ekki inn í ímyndina. Ég fullyrði að það væru allir til í að hafa góðan leikmann í sínum röðum sem væri hommi í staðinn fyrir að hafa miðlungs leikmann sem væri gagnkynhneigður. Í enda dagsins snýst þetta um að vera góður í íþróttinni," segir Þórður.

Hann er ekki á því að það þurfi að verða viðhorfsbreyting innan fótboltaliða. „Nei alls ekki, fólk verður bara að vera það sjálft sama í hverju það er. Það yrði pottþétt talað um þetta og örugglega aðeins hlegið í klefanum en það yrði ekkert mál í sjálfu sér og eftir einn til tvo daga væri þetta búið og lífið í boltanum héldi áfram. Ég myndi ekki segja að það væru beint fordómar í garð samkynhneigðra heldur meira glettni og grín. Það líta kannski einhverjir á það sem fordóma"

„Fótboltamenn eru ekki öðruvísi en annað fólk, þetta er bara þverskurður af samfélaginu. Einhverjir hafa fordóma gagnvart samkynhneigðum en flestir hafa það ekki."

Smelltu hér til að hlusta á umræðuna í morgunútvarpinu.

Heimildarmyndin „Britain's gay footballers" sem sýnd var á BBC á dögunum hefur vakið mikla athygli en þar er farin árangurslaus leit að samkynhneigðum leikmönnum í enska boltanum.

Amal Fashanu er umsjónarmaður þáttarins en hún er frænka Justins Fashanu sem tók eigið líf 1998. Fashanu var fyrsti atvinnumaðurinn í fótbolta til að koma út úr skápnum en enginn atvinnumaður hefur gert það síðan.
Slapp
banner