Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. febrúar 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Austurlandsmótið: Leiknir F sigraði Hött
Eysteinn Húni tók fram takkaskóna í fyrrakvöld.
Eysteinn Húni tók fram takkaskóna í fyrrakvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir Fáskrúðsfirði lagði Hött 4-2 í Síldarvinnslumótinu á Austurlandi í fyrrakvöld en leikið var í Fjarðabyggðarhöllinni.

Þónokkuð marga leikmenn vantaði í lið Hattar sem mun spila í fyrstu deildinni í sumar.

Eysteinn Húni Hauksson, þjálfari Hattar, reif meðal annars fram skóna og spilaði síðustu fimm mínúturnar í leiknum.

Þetta var fyrstii leikur Leiknis í Síldarvinnslumótinu en Hattarmenn eru með eitt stig eftir þrjá leiki.

Leiknir F. 4 - 2 Höttur
0-1 Sindri Snær Birgisson ('41)
1-1 Norbert Dobryzcki ('47)
2-1 Almar Daði Jónsson
2-2 Hafsteinn Gunnlaugsson ('54)
3-2 Fannar Bjarki Pétursson ('56)
4-2 Arkadiusz Jan Grzelak ('82)
Slapp
banner
banner
banner