Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 09. febrúar 2012 15:21
Elvar Geir Magnússon
Heiðar Helguson ekki með gegn Blackburn
Heiðar Helguson er enn á meiðslalistanum hjá QPR. Vonast hafði verið eftir að hann myndi snúa aftur um helgina þegar liðið heimsækir Blackburn í miklum fallbaráttuslag.

Mark Hughes, stjóri QPR, sagði þó á blaðamannafundi að Heiðar myndi ekki leika.

Akos Buzsaky snýr aftur í liðið eftir að hafa misst af síðustu tveimur úrvalsdeildarleikjum vegna meiðsla.

Djibril Cisse tekur út leikbann í leiknum og þá er DJ Campbell meiddur rétt eins og Heiðar.

Umræddur leikur verður klukkan 15 á laugardag en QPR er aðeins stigi fyrir ofan fallsæti, þremur stigum fyrir ofan Blackburn sem situr í næstneðsta sætinu.
Slapp
banner
banner