Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 10. febrúar 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Haris Vuckic til Cardiff (Staðfest)
Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff hafa fengið liðsstyrk en Haris Vuckic er kominn til félagsins á láni frá Newcastle.

Þessi 19 ára gamli Slóveni gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Leicester í Championship deildinni á morgun.

Vuckic hefur leikið fimm leiki með Newcastle í vetur en hann kom til félagsins frá NK Domzale í janúar árið 2009.

Vuckic má ekki spila með Cardiff gegn Liverpool í úrslitaleik enska deildabikarsins á Wembley þann 25. febrúar þar sem hann kom inn á sem varamaður í sigri Newcastle á Scunthorpe í sömu keppni í ágúst.

Cardiff er sem stendur í fjórða sæti í Championship deildinni, tveimur stigum á eftir Southampton í öðru sætinu.
Slapp
banner